Á Íslandi eru um 130 eldfjöll, en aðeins 18 hafa gosið á sögulegum tíma. Hekla, Bárðarbunga, Grímsvötn, Katla og Öræfajökull eru stærstu eldfjöll Íslands, og öll bera þau merki um að þau séu að undirbúa gos á sama tíma, og mögulega gæti meira en tvö eða fleiri eldfjöll gosið samtímis.
Hekla, eða svokölluð Drottning Íslenskra eldfjalla 1491 metra hár eldhryggur og er eitt virkasta og þekktasta eldfjalla á Íslandi. Hekla er í Rangárvallasýslu og minnir mann svolítið á bát á hvolfi. Hekla gaus síðast árið 2000 Bárðarbunga er 2 km á hæð og er hæsti punktur á norðvestanverðum Vatnajökli. Undan henni gengur skriðjökullinn Köldukvíslarjökull með öðrum minni jöklum. Bárðarbunga er stór og öflug megineldstöð og er talin vera víðáttumesta eldstöð landsins og hún er talin vera um 200 km löng og 25 km breið. Bárðarbunga er næst stærsta eldstöðin á landinu og annað hæsta fjall landsins. Ofan í Bárðarbungu er 850 m djúp askja. Grímsvötn er virk eldstöð austan frá Grímsfjalli undir Vatnajökli. Grímsvötn eru virkasta eldstöð landsins og hefur líklegast gosið oftar en 100 sinnum frá landnámi og 13 sinnum síðan árið 1902. Grímsvötn er um 100 km löng og 15 km breið. Katla er eldstöð undir Mýrdalsjökli. Katla er stór megineldstöð, hún er ein af stærstu megineldstöðvum landsins. Eldstöðin er 30 km í þvermál og rís hæst yfir 1400 m yfir sjávarmál. Katla gaus síðast árið 1918 og á að gjósa fljótlega. Öræfajökull er eldkeila í Austur-Skaftafellssýslu. Yfir fjallinu er jökulhetta sem er Öræfajökullinn sjálfur og er syðsti hluti Vatnajökuls. Jökullinn fyllir stóra öskju efst á fjallinu. Á norðurhlið er Hvannadalshnjúkur sem er hæsti tindur landsins |